Wednesday, May 25, 2005
Ég er Flutt!!!!!!!!!!!!!!


Posted at 04:41 pm by HeidaSigrun
Make a comment  

Thursday, May 05, 2005
mydnir myndir

http://www.123.is/oligeir/upload/_MG_2385.jpg http://heidasigrun.blogdrive.com/images/g%20og%20hilla....jpg

Posted at 09:23 am by HeidaSigrun
Comments (1)  

Suss....

Hver man ekki efitr gömlu góóóóðu tímunum.. Gaukurinn var lítill allir komust fyrir uppi á borðum eða bara í þröng á minnsta dansgólfi sögunnar..Nelly´s var staðurinn og Klúbburinn.... suss....það var bara hlaupið á milli.. Tunglið var flott... (ég vann þar líka einnig á nelly´s) Það þekktu allir alla. maður fór út af staðnum um 3 rölti á lækjartorgi í 2 tíma .. það voru cirka 2 ferðir (fram og til baka) frá Apótekinu og að horninu hjá fröken reykjavík, Það voru ALLIR í bænum.... Svo var farið og bankað á hurðina á Gauknum og skellt sér í eftir partý á efri hæðinni... Vá hvað það var gaman.. Muniði júní júlí djammað til 9 allir sitjandi uppi á Arnarhól, drekka syngja og leggjast í sólbað... eftir djamm ..Suss..... Og hver man ekki eftir Amazon á laugaveginu.. ég fæ fiðring í hvert skiptið sem ég hugsa um þennan stað.. Og einungis Erla veit af hverju. Suss.... Bið að heilsa þú veist hver þú ert En er að henda inn myndum og láta mig dreyma um gamla dag... Skrifa meira seinna.. er að henda inn myndum hjá kidsó líka.. tjáná... Heiða Sigrún fiðrildafiðringur um allan kroppinn þessa dagana... SUSSS....................

Posted at 07:48 am by HeidaSigrun
Make a comment  

Tuesday, May 03, 2005
Vinna Vinna Vinna Vinna Vinna

Suss maður hvað þessi helgi var steikt....

Ég var að vinna alla helgina byrjaði á föstudagskvöldinu með að þrífa Reiðhöllina....vorum nú reyndar ekkert rosalega lengi...... kíktum aðeins niður í bæ einn rúnt ég og Stefán Bragi bróðir minn..... ég hljóp út um allt, inn á Rex, Hressó, Hverfisbarinn , Grand Rokk, Glaumbar og Ara í Ögri.

Laugardagskvöldið var mjög fínt eða þannig... Fór á hestasýninguna klukkan 9 með Sillu svaka skutlu... Svavar var með krakkana... eftir sýninguna fór ég að skúra... Var að til 6 um morguninn Og Bragi snilli var með mér...Elska þig í ræmur sæti brósi minn.. takk takk...

Annars er lítið frétta af mér bara heví sumarbústaðaferð framundan. Fer á föstudeginum, kem aftur á sunnudag.... get ekki beðið eftir þessari skemmtun...
suss.....

jæja er að henda inn meiri myndum...
kíkið á eftir......

Varð að láta þessa fylgja þetta er ein sú hræðilegasta sem ég hef tekið og séð í áraraðir..
STELPUR .!!!! hann er í alvörunni EKKI svona ómyndarlegur.. ÉG SVER ÞAÐ ...sorrý Kobbi min... (K)


Posted at 12:06 pm by HeidaSigrun
Make a comment  

Sunday, April 24, 2005
Well well

Þá er þetta djamm búið... Skellti mér í bæinn með Falasteen yndislegu fallegu og sætu.. hún var æði í gær þurfandi í ansi tvísýnu pilsi. Náðum í Helgu eftir að við vorum búnar að mála okkur... og syngja Celien Dion (get ekki munað hvað hún heitir).. Alla vega eftir sinnepið fórum við til Helgu.. Falasteen gaf okku svona blómsveig til að vera með sumargjöf til okkar frá henni... Við vorum að sofna þegar við fórum frá Helgu... En ég skellti bjórunum í grímuna á þeim og þreif þær út... enda þrifaleg með afbriðgum... ;)

Við fórum á Hressó ó geggjuðu skapi. ruddumst inn eins 3úr tungunum ég dansaði eins og bavíani með gyllinæð.. .Og labbaði næstum því á Ingþór.. ASNA... sem reydni ekki einu sinni að heilsa mér.. Og eins og mín heppni er þá komst ég ekkert því það var svoooo stappað að ég varð að standa BEINT FYRIR FRAMAN HANN....
En svo var bara dansað... og djammað þar til við tókum rölt. En djammið var svo skrýtið,, Enda Fullt tungl...
Kannski það sé ástæðan fyrir því að ég fékk að fara út....hummm gudd þott...
En svo fórum við heim um 5 var komin heim um 6 eftir að ég keyrði Braga brósa og Krissa heim...
En annars er lítið að frétta nema það að ég er að fara í bústaðinn með vinnunni þann 6 maí.. Ég get ekki beðið og svo er vinna ALLA næstu helgi...
þrífa Reiðhöllina.. . well I´m off... sængin mín saknar mín... hú em æ kidding ég sakna hennar.. Ekki einu sinni sæng myndi sakna mín... Sussss... hey þið verðið að lesa þetta um hana Hildi vinkonu hún er snilli... Einn strigaskór upp í loft fyrir henni.... Hver er SugaMama

Posted at 04:09 pm by HeidaSigrun
Make a comment  

Tuesday, April 19, 2005
Varð að stela þessu frá Hörpu Frænku

....enda algjör snilld....

it´s a must les......

Vell set bara inn slóðina ... Harpa Frækna
Gekk ekki nógu vel að kópera og fonta er ekki alveg búin að læra á þetta fonta dót hérna eins og ég er nú mikill FONTAFLIPPARI ...
En alla vega af mér er lítið að frétta ég er búin að vera veik í 2 daga.. eða reyndar meira og minna veik frá fimmtudeginum síðasta...

En dagurinn í dag var erfiður.... Vaknaði fyrir 8 ein með börnin enn ooof veik... Enda leit ég út eins og útriðinn stóðhestur sem vaknaði við að næstu 15 biðu hans En nóg með það ... Börnin fengu sumargjafir.. Dóttir mín gjörsamlega missti sig yfir nýju inniskónum fékk svona babydoll skó með smá hæ og fjaðra eitthvða fjólubláu á ... hún er eins og ammerísk húsmóðir frá 1960 vantar bara sloppinn og rúllurnar því hún er búin að ná göngulaginu.....

Svo var kíkt til ömmu og kalla.... þar fengu börnin gefins kúlutjald. Þar var setið og hlegið og brotnir nokkrir húsmunir... Fórum aftur heim og höfðum það fínt Breki fór út að leika og við Andrea inn að leika að inniskónum sem fóru með henni til ömmu,..... Varð að taka þá með.. En ég fékk alveg geggjaðan gest í gær.. Hún Falasteen vinkona kom í heimsókn með Jasmín Guðrúnu og eldaði þennan líka dýrindismat fyrir okkur... Alveg geggjaður... Þetta hét vínberjalauf, búið til úr hakki kartöflum alls konar grænmeti og laukum og ekta hrísgrjón ala Falasteen og AB mjólk með ...
*Geðveikt eins og allt sem hún gerir ... sérstaklega Grillaða nautahakkið hennar...

En nóg í bili er að henda inn myndum frá helginni ... ekkert merkilegar.. en ...
tjá for ná mí a bella...

Posted at 04:36 am by HeidaSigrun
Make a comment  

Sunday, April 17, 2005
Jæja and..... hafði það mar...


Jamm þannig er nú málið..
Ég skellti mér í bæinn í gær.. í afmæli og svo var víst ekkert afmæli .... en ég get svo SVARIÐ ÞAÐ þú þarna Prumpuhesturinn þinn að það stóð 16 apríl í sms inu til mín en EKKI 23. apríl... svo þér að kenna ekki mér..... ulla barasta en ég reyni nú samt að koma þá......Enda hefði ég munað það því Beggi á afmæli þá ... Pjuff...

En alla vega þarna stóð ég ein og yfirgefin, með greitt hárið og 700 kjall í vasanum á Hressó ekkert alltof hress.. en eftir Hresst sítal við Prumpuhestinn sjálfan hresstist ég við og hringdi í Preggó.... ( and.. verð að far aað skipta um nafn á henni risinn hennar er að verða 1 árs... sjusss...) og hún var að fara að klæða sig svo hún bað mig um að ná í sig... Ég skellti mér í Garðabæinn í gírnum Húsfreyjan tók á móti mér á sloppnum að slétta sig... Ég pissaði eins og drottningu sæmir með opið fram að kjafta við Hildi sem bæ þe vei var á klóaranum líka... þegar þessu er lokið rölti ég inn í herbergi og hjartaáfall ... þar lág fullvaxta karlmaður á rúminu.... Ég þakkaði bara Guði og Garðálfinum fyrir að honum var ekki mál um leið og mér...


Eftir spjall útásetningar og spegúleringar í Söngkeppni framhaldsskólanna var komið að myndasyrpu 103..
teknar voru ANSI margar myndir í mismunandi stellingum... Allar ógrófar því .. því miður Púllarinn minn ég veit hvað þú vilt sjá okkur Hildi saman.... en bara seinna.. ;)
...Alla vega.... Svo var farið og bragðað á smá svína rifum ala Hildur með 6 tegundum af sósu á og slatta af henni held það hafi verið Grillað og Gott, Barbecue fyrir byrjendur sinnepsslattasósa og eitthvað sem ég kunni ekki að lesa enda ekki sleip í úglenskunni sko...
svo eftir þetta 50 mín.. prógramm byrjaði hildur LOKSINS að klæða sig....


Við skelltum okkur í bæinn eftir smá kók (aín) leit í bílun af símanum og myndavélatöskunni sem Fannst ekki þrátt fyrir mikla leit... Vallsý mætti á svæðið og við fórum á Glaumbar eftir 80´s rúnt niður Laugarveginn þar sem ég læt aldrei sjá mig aftur í björt þar sem ég var örugglega úrskurðuð geðbiluð...


Glaumbar ´tok á móti okkur með Yatsy Dj. togarsjóurum og Miss Uglyest Pantihose.... Meira að segja munstruðu rósasokkabuxurnar sem mamma átti einu sinni náðu ekki þessari stúlkum sem var að byrja að vinna á GLaumbar þetta kvöld... Sem bæ þe vei ætlaði 3 að rífa af mér vatnsglasið áður en ég kláraði það ...
Það bendir reyndar líka til fjöldans sem var þarna inni .. því eftir smá tíma var hinn glasadrengurinn farinn að biðja um glasið mitt.
Ég sagði já já taktu það endilega ef þú færir mér nýtt með vatni... :D:D:D:D:D:D:D


Eftir um 50 myndir af hvor annari, okkur sjálfum, okkur báðum, og okkur saman, fórum við á Hressó...
Þar var margt um manninn við á gólfið....
Eftir 2 lög kom NUMA NUMA (sjá texta við lagið aðeins aftar á síðunni) með O-Zone og það heyrðist yfir á Guak er ég sleppti lofti úr lungunum yfir því... Það var víst enginn að fýla það eins mikið í botn og ég .. en alla vega fékk fólk að hlægja það kvöld... við vorum þarna í smá tíma og fórum svo að halda heim á leið.. Myndataka á leiðinni sem fór í Pirrurnar á sumum svo VÆGT sé til orða tekið... Hildur var orðin svo drukkin af 4 bjórum að Bogi og Örvar hefðu skammast sín. hún gekk eins og húkt hæna með skitu alla leiðina frá Dubliners og inn á Glaumbar þar sem hún náði á klóið... Gæti verið að samræði hennar við stöðumælinn hafi farið svona með hana...sjá í myndaalbúmi bæði hænugang og aumingja stöðumælinn...
Löbbuðum einn hring á Glaum þar sem slegist var við okkar um (því miður ekki okkur) heldur stólana sem við sátum á ... eða Vallsý... gerði nú lítið annað en að setjast þegr mér varg sagt að gera það ....

hver segir sov að ég sé ekki hlýðin...
En alla vega takk í dag... endilega kíkið á myndirnar.... í albúminu þær eru geggjaðar
skrifa meira á morgun um Smárlindina Stóra vinninginn og Subway.
....

Posted at 05:35 pm by HeidaSigrun
Comments (2)  

hneggjað kvöld, alveg múffulega gott.

Klikk klikk og knús... Hildur ég elska þig...... Það var geggjað smeggjað gaman í gær... Ég tók með mér myndavélina í bæinn tók reyndar bara myndir af mér og hildi... uhmm skrýtið..... 3 af einhverjum öðrum.... tókum reyndar bara um 123 myndir..... En er að henda þeim inn hérna..... Myndirnar mínar

Posted at 05:48 am by HeidaSigrun
Make a comment  

Thursday, April 14, 2005
Er sko ALVEG AÐ fíla Norge í eurovision.....!!!!!!!!!

Geggjað lag... ekki hræddir við Eurovision þessir.. Geðveiktt....
Gó norge.....


Austurríki....; veit ekki sko.. ble ble..
Litháen... : hum..kveikir ekki strax alla vega...dauft...leim 80´s lag..
Portúgal....: Fínt hlakka til að sjá það á sviði hefði viljað hafa það allt á portúgölsku...
Moldóvía... Passar ekki í júróvision... hresst rooosalega öðruvísi...
Litháen..... : litlu ólsen bræðurnir.. fallegt mjööööög rólegt... getur alveg komist áfram...
Mónakó ..... : Flott rólegt fallegt kemst áfram....
Ísrael... ágætt....týpískt eitthvað ...góð söngkona samt smá kraftur
Hvíta Rússland...: flott lag þoli hana ekki ekki góður texti heldur.. léleg enska.. léglegur söngur..
Holland ; góð söngkona .. Witney Houston eitthvað ekki eins gott...
Ísland... miðað við það sem komið er við áfram með þeim efstu...
BElgíá... rólegt... se sva se sva se sva of OFT....en kraft mikið og fínt ...fínn söngvari...
Eistland.... flott lag góðar stelpur ,...vantar allan kraft í þær.... Enn þær komst því miður áfram...
Noregur.... Geggjað flottirr....... Kiss Scorpions eitthvað flottt...Flott lag...Góður krfatur... Europe.....Alveg malið...
Rúmenía..... flott rödd flott lag....flott söngkona...kemst áfram
ungverjaland...... flott spes... smá kraftur má vera meiri....kemur í ljós á sviði hvort það deyr niður eður ei...já og nei áfra,
Finnland.. ágætis söngvari leiðinlegt lag....
F.Y.R. Makedónía... Þetta lag svona grós on jú...... allt í góðu... má bara ekki verða kraftlaust á sviðinu svolítil hætta á því...
Andorra.....æi veit ekki þoli kellinguna ekki ,.... hata munninn á hennni...
Sviss.......Góóóðar.... töff rödd í söngkonunni... kraftur flott..
Króatía..... blehhh
Búlgaría... Eitthvað sem heillar mig við lag og myndband.. held ég fýli það ekki á sviði.. of dautt eitthvað ..eeehh
Írland... bjóst við því betra eftir allt umtalið en.... neeeeh jú hresst en allt of eins eitthvað fannst vanta írska tötsið....Eða bara jhonny Logan ...
Slóvenía.....Lýst vel á það í byrjun... flott... góður söngvari... eitthvað mikið sem heillar mig.. Kemst áfram
Danmörk ... flott smá svona westlife, Olsen bræður....;) áfram.....
Pólland......tú möts hraði eitthvað í byrjun hélt lagið væri að enda...er ekki að fýla þetta mig var farið að svima þegar það var hálfnað...
e

En nóg í bili. er farin að sofa áður en ég æli meira... Ef við komumst ekki áfram úr þessari undankeppni þá KOM ON....
Við hljótum að negla það.......

Skrifa meira á morgun þá verð ég búin að ákveða mig hverjir komast áfra,m,,,,
tjá for ná....


Posted at 05:22 pm by HeidaSigrun
Make a comment  

Monday, March 14, 2005
Vildi að þetta hefði verið komið áður en ég eignaðist mín....

-Undirbúningur undir foreldrahlutverkið felst ekki bara í því að lesa sér
til og undirbúa barnaherbergið. Hér á eftir fara 12 einföld sjálfspróf
fyrir verðandi foreldra til þess að búa þá undir foreldrahlutverkið.




1. Fyrir konur: Finndu þér stóran baunapoka og stingtu honum inn á þig til
að undirbúa móðurhlutverkið. Hafðu pokann á þér í 9 mánuði. Fjarlægðu
einntíunda af baununum að níu mánuðum liðnum. Fyrir karla: Farðu í apótekið
og hvolfdu úr peningaveskinu á borðið og segðu lyfjafræðingnum að fá sér eins
og hann vill. Farðu í stórmarkaðinn. Gakktu frá því að launin þín fari
beint inn á aðalskrifstofuna. Farðu heim. Taktu dagblað og lestu það í
síðasta skipti.


2. Áður en þú ákveður endanlega að eignast börn, finndu hjón sem þegar eiga
börn og segðu þeim frá meginatriðum uppeldis, aga, þolinmæði og helltu þér
yfir þau um það að þau hafi látið börnin vaða yfir sig. Komdu með tillögur
um svefntíma, koppaþjálfun og almenna hegðun. Njóttu þess - þetta er
síðasta skiptið sem þú hefur svör við öllu.


3. Til að átta þig á því hvernig dæmigerður sólarhringur er fyrir foreldra
gæti komið sér vel að ganga um stofuna á daginn frá 5-10 um kvöldið og
halda á blautum poka sem vegur u.þ.b. 4-6 kíló. Leggðu pokann frá þér
klukkan 10 og stilltu klukkuna á miðnætti og farðu að sofa. Farðu á fætur
klukkan 12 og gakktu um stofuna aftur með pokann til 1. Stilltu klukkuna á


4. Þú getur ekki sofnað svo þú færð þér vatnsglas og ferð í rúmið kortér í
þrjú. Farðu aftur á fætur klukkan 3 þegar klukkan hringir. Syngdu í
myrkrinu til klukkan 4. Stilltu klukkuna á 5. Farðu á fætur þegasr hún
hringir og búðu til morgunmat. Gerðu þetta í fimm ár og mundu að vera
glaðleg allan tímann.


5. Þolirðu draslið sem börn valda? Til að athuga það þá skaltu taka
hnetusmjör og smyrja því á sófann og klína sultu í gluggatjöldin. Settu
bita af soðnum fiski bakvið hljómflutningstækin og láttu það vera þar í
allt sumar. Stingtu fingrunum í blómapottana og þurrkaðu af þeim á
veggjunum. Litaðu svo ofan í moldarblettina með vaxlitum. Hvernig lítur
þetta út ?


6. Það er ekki auðvelt að klæða lítil börn. Kauptu þér lifandi kolkrabba
og innkaupanet. Reyndu að setja kolkrabbann í netið án þess að nokkur angi
hangi út. Reyndu að leysa þetta á einum morgni.


7. Taktu eggjabakka. Notaðu skæri og málningu til að breyta bakkanum í
krókódíl. Finndu svo klósettrúlluhólk. Taktu límband og álpappír og
breyttu hólkinum í jólatré. Að lokum skaltu taka mjólkurfernu,
borðtenniskúlu og tóman Coca Puffs pakka og búðu til Eiffel turn. Til
hamingju þú hefur lokið hæfnisprófi til að vera foreldrafulltrúi á
leikskólanum.


8. Seldu bílinn þinn og kauptu þér skutbíl. Hann verður ekki skínandi og
hreinn. Fjölskyldubílar eru ekki þannig. Kauptu súkkulaðiís og settu hann
í hanskahólfið. Skildu ísinn eftir þar. Finndu fimmtíukall og settu hann
í segulbandsspilarann. Kauptu fjölskyldupakka af súkkulaðibitakökum.
Myldu þær niður í aftursætið. Taktu hrífu og dragðu eftir hliðunum á
bílnum báðum megin. - Sko! Frábært!


9. Búðu þig undir að fara út. Bíddu fyrir utan baðherbergið í hálftíma.
Farðu út um aðaldyrnar. Farðu inn aftur. Og aftur út. Einu sinni enn út
og aftur inn. Gakktu alveg út á gangstétt og aftur upp að húsinu. Gakktu
aftur út á gangstétt. Gakktu mjög hægt í fimm mínútur. Stoppaðu við hvern
einasta sígarettustubb og skoðaðu hann mjög vel. Skoðaðu líka
tyggjóklessur, bréfsnifsi og skordýr sem þú rekst á. Gakktu nákvæmlega
sömu leið til baka. Þegar þú kemur að húsinu aftur, öskraðu þá eins hátt
og þú getur: "Ég er búin að fá nóg!,, Haltu þessu áfram þangað til
nágrannarnir koma út í glugga og glápa á þig. Farðu aftur inn. Nú hefurðu
fundið hvernig er að fara með tveggja ára barn út að ganga.


10. Endurtaktu allt sem þú segir að minnsta kosti fimm sinnum.


11. Farðu í næsta stórmarkað. Taktu með þér eitthvað sem minnir á 4-5 ára
barn. Kind er til dæmis ágæt. Ef þú ætlar að eignast fleiri en eitt barn,
taktu þá fleiri kindur með þér. Kauptu inn fyrir eina viku án þess að
missa sjónar á kindunum. Borgaðu fyrir allt sem kindurnar eyðileggja eða borða.
Ef þessi reynsla kemur þér úr jafnvægi skaltu ekki láta þig dreyma um að
eignast börn.


12. Holaðu melónu að innan. Gerðu lítið gat á hliðina. Hengdu hana í band
í loftið og sveiflaðu henni til. Taktu nú fulla skál af hafrabraut og
reyndu að koma honum í gatið með því að þykjast vera flugvél. Haltu áfram
þangað til þú ert hálfnuð. Klíndu afganginum í kjöltuna og settu slatta á
gólfið. Nú ertu reiðubúin til að mata ársgamalt barn.



12.Lærðu nafnið á öllum persónunum í Brúðubílnum, Dýrunum í Hálsaskógi og
Teenage Mutant Ninja Turtles. Þegar þú ert farin að syngja "Grænt, grænt,
grænt er grasið úti í haga,, í vinnunni þá ertu reiðubúin til að verða
foreldri.





Ég hefði örugglega hætt við.......

En nóg um það lítið að frétta.... Annað en barnafmæli á laugardeginum , og ferming hjá Lillu syss á sunnudeginum......
Æðisleg veisla fullt af fólki og geggjað gaman,..
En ég skrifa meira í kvöld. og set kannski inn systkina myndir af okkur fögru fljóðunum...

tjá amigos...







Posted at 11:44 am by HeidaSigrun
Make a comment  

Next Page
" width=70 height=70>
Mynd af mér já sjáum nú til ......
My and Andrea Super.
   

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed